Þakka þér fyrir að koma á síðuna
Vilt þú losna við flóarbit
hafðu samband 6997092
Ágætu lesendur.
Mig langar að deila
með ykkur sannri sögu.
Þannig er að maður á sextugsaldri
var með mikið af útbrotum.
Ég skoðaði aðstæður þvi grunur
lék á að starafló væri að bíta.
Einnig voru tvær kisur í húsinu.
Ekkert starahreiður fannst.
Ég hvatti hann til að fara til læknis.
Í stuttu máli þá var
niðurstaðan sú að skógarmítill
hefði bitið hann um sumarið.
Hann var sýktur af s.k. Borellíu bakteríu.
Hún hafði borist inn í blóðrás
hans eftir bit skógamítils.
Þess ber að geta að
hann hafði ekki farið
til útlanda á síðustu árum.
Læknirinn telur að síðbúin
áhrif séu vegna sýkingarinnar
sem koma ekki í ljós fyrr
en 7 – 8 mánuðum seinna.
Nú er maðurinn kominn á sýklalif
sem vonandi drepur bakteríuna.
Ef ekkert hefði verið farið til læknis
er hugsanlegt að bakterían hefði
getað valdið mjög alvarlegum sjúkdómi.
Sjúkdómurinn nefnist Lyme-sjúkdómur
og getur valdið heilabólgum og liðagigt.
Mitt ráð: Ekki gera alls ekki neitt.
Þakka þér fyrir að koma á síðuna
Vilt þú losna við starahreiður
hafðu samband 6997092
Það sem lesendur hafa líka skoðað
Hvernig hegðar staraflóin sér?
Hvaða algeng skordýr eru í húsum á Íslandi?
Bit eftir starafló hvað geri ég? – góð húsráð