Hve langann tíma tekur að veiða mús?

Hve langann tíma tekur að veiða mús?

Hafið samband  eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna við mýs eða skordýr

Mikki mús

Músin veiddist eftir 3 daga, þolinmæði er allt sem þarf

Það getur tekið mjög stuttan tíma.

Mús getur komið í músagildru eftir
klukkutíma eða 1 viku stundum lengur.

Það sem skiptir máli er að koma upp vörnum.

Skoða húsnæði og loka inngönguleiðum. Continue reading

Er hægt að veiða margar mýs í einu?

Er hægt að veiða margar mýs í einu?

 

Mús í smellugildru

Mús í smellugildru

Hafið samband  eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna við mýs set upp músavarnir

það er hægt. Það þarf að setja upp varnir.

Hægt er að velja um nokkrar aðferðir. Continue reading

Hvernig get ég vitað að mús er inni í húsinu?

Hvernig get ég vitað að mús er inni í húsinu?

Hafið samband  eða hringið í
6997092 
ef ykkur vantar aðstoð
við að setja upp varnir til að losna við mýs

Kötturinn að lieta að músinni

Kötturinn að lieta að músinni

Skoðar ummerki, tld sést músaskítur.

Finnst ykkur eitthvað athugavert við matarpakningar.

Ef búið er að naga kornflexpakkann eða ceriioskassann þá er örugglega mús inni.

Er búið að naga klæðningu?

 

Er rafmagnsleiðsla nöguð?

Svona mætti lengi telja. Continue reading

Köngulóareitrun

Köngulóareitrun
Ef ykkur vantar aðstoð. Hafið samband eða hringið í 6997092

Glitvellir

Hús á tveimur hæðum, bestur árangur næst ef allar íbúðir eru eitraðar

Þegar eitrað er fyrir köngulóm þá þarf að undirbúa eitrun.

Mikilvægt er að allir séu meðvitaður um að eitrið sem notað er sé ekki að lenda á óæskilegum stöðum. T.d. barnaleikföng, matjurtir, þvottur á snúrum,gæludýr, börn, nágrannar, bílar o.sv.frv.

Til þess að koma í veg fyrir að eitrið berist annað en það á að gera þá þarf að hylja eða fjarlægja hluti. Continue reading

Það eru köngulær og roðamaur hjá mér, hvað get ég gert?

Það eru köngulær og roðamaur hjá mér, hvað get ég gert?

krosskönguló

Krosskönguló

Í fyrsta lagi ekki fara í panik. Þú gætir byrjað á að sópa köngulónum með kúst, en það er að vísu skammgóður vermir því þær virðast alltaf koma aftur, en allt í lagi að prófa. Sumir hafa prófað að setja salt meðfram húsveggnum, en ég hef ekki prófað það sjálfur.

Köngulóarvefir eru þó verstir að mínu mati, eins og ein ung kona sagði þá er ég heppinn. “Maðurinn minn fer á undan í vinnuna þannig að hann labbar á vefina”. Blaðburðarfólk lendir reyndar oft í vefunum snemma á morgnana.

Köngulónum líður greinilega vel þar sem þær hafa komið sér fyrir hvort sem það er hjá þér eða annars staðar.

Roðamaur

Roðamaur

Roðamaurinn er erfiðari viðureignar en þú gætir prófað að setja möl upp við húsvegginn. En það er samt ekki að virka alveg nógu vel í flestum tilfellum.

Hvað er þá til ráða? Það hefur virkað ágætlega að eitra. Ef það er gert ber þó að taka tillit til nágranns sérstaklega ef hann er með matjurtagarð við hliðina.

Það er hægt að breiða yfir og eitra þannig að eitur berist síður í matjurtirnar, heldur fari þar sem köngulær og eða roðamaur er að angra.

geitungabú

geitungabú það fer að styttast í að geitungur sjáist í búum

Það eru fleiri þættir sem þarf að hafa í huga og er best að skoða hvern stað fyrir sig

Ef þér líst ekki á að hafa köngulærnar eða roðamaurinn lengur hjá þér, ekki hika við að hafa samband við meindýra- og geitungabann eða hringja núna í 699-7092 og hann kemur og eitrar fyrir þig.

Eitrið sem notað er virkar í ca. 3 mánuði ef það rignir ekki í burtu. Ef eitrað er í byrjun júní þá ættu köngulær ekki að vera vandamál. Ef eitrun mistekst þá kemur kallinn aftur.

 

 

Er hambjallan skaðleg?

Er hambjallan skaðleg?

Það kom fyrirspurn varðandi hambjölllu (hamgæru). Rétt er að benda á að hambjallan þarf ekki raka eins og silfurskottan en öll dýr þurfa reyndar að fá vökva til að geta lifað. Til að varpa örlitlu ljósi á hana og hvað þarf að gera fyrir eitrun þá er fróðleikur hér að neðan. Til að vera viss um hvaða skordýr er í húsinu er langöruggast að láta greina dýrið. Meindýra- og geitungabaninn getur farið með dýrið í greiningu ef óskað er eftir því. (gsm 6997092)

hambjalla séð ofan frá

hambjalla séð ofan frá

Hún er varla skaðleg í húsum okkar en þar sem eru uppstoppuð dýr og plöntusöfn getur hún verið til vandræða, er gráðug og getur valdið skemmdum. Hún er fyrst og fremst hvimleið og finnst mörgum hún vera “ógeðsleg” vegna þess að hamurinn getur verið víða.

 

 

hambjalla lirfa

hambjalla lirfa

Hambjalla er af ættbálki (Coeoptera) bjallna sem telur vel yfir 300.000 tegundir í heiminum. Hún er svartbrún með gulleitan blett á hvorum skjaldvæng og er 3-4 mm að lengd, sjá nánar

Hambjallan (Reesa vespulae) dregur nafn sitt af hamskiptum sínum. Meðan hún er á lirfustiginu skiptir bjallan um ham 5-7 sinnum og skilur haminn eftir þar sem hún hefur verið.
Þær geta leynst víða eins og til dæmis í skápum, gluggakistum gamalla húsa og víða þar sem gott skjól er að finna. Fullorðnu dýrin eru tiltölulega skammlíf, en tegundin fjölgar sér án þess að frjóvgun fari fram. Karldýr hafa aldrei fundist. Dreifing tegundarinnar fer því greiðlega fram, þar sem ekki þarf nema eitt egg til að koma á fót nýjum stofni á nýjum stað.

Hambjalla púpan

Hambjalla púpan

Eggin klekjast út á tveimur vikum, en vaxtartími lirfanna er breytilegur og fer eftir aðstæðum. Við slæm skilyrði gæti uppvöxturinn tekið töluvert lengri tíma en eitt ár, og geta lirfurnar lifað marga mánuði án þess að fá mat eða drykk. Lirfurnar eru þó að öllu jöfnu ákaflega matlystugar

 

 

 

Úðun – Eitrun

  • Eitur: Deltamost blandað í vatn í réttum hlutföllum
  • Sökklar: Borað lítið gat í sökkla og úðað inn í holrými
  • Niðurföll: Niðurföll skoðuð (kannað hvort að önnur dýr séu t.d. silfurskotta)

 

moppa

moppa

Undirbúningur fyrir úðun:

  • Færa til húsgögn í samráði, þannig að hægt sé að úða meðfram veggjum
  • Þrífa þarf meðfram veggjum.
  • Fjarlægja barnaleikföng þannig að ekki sé hætt á að að eitur berist í þau við úðun.
  • Taka allt úr neðstu skápum í innréttingum.
  • Breiða yfir fiska- og fuglabúr.
  • Ef það eru gæludýr eins og hundar eða kettir koma þeim fyrir hjá vinafólki
  • Það má enginn nema sá sem úðar vera á staðnum á meðan eitrun fer fram

Hvað á að gera eftir að búið er að úða:

ryksuga

ryksuga

  • Það er í lagi að koma aftur inn í hús að fjórum klst. liðnum ef allt er eðlilegt
    • Ef um asma eða önnur sambærileg tilfelli er að ræða þá 24 klst.
    • Ófrískar konur 24 klst.
    • Lítil börn og gæludýr 8 klst.
    • Eftir úðun, þrífa með þurrmoppu eða ryksuga.
    • Ef þrifið er með blautu skal skilja eftir u.þ.b 10 sm frá vegg í 3-4 vikur.

     

    • Það er mjög líklegt að fólk sjái eina og eina bjöllu næstu vikurnar en svo hverfur þessi ófögnuður alveg, sé rétt að úðun staðið.
    • Ekki er hægt að lofa að hambjöllu sé útrýmt eftir eitrun
    • Það getur þurft að eitra aftur

 

Heimildir: Myndir af neti

Hvernig get ég komið í veg fyrir að mús komist inn í húsið mitt?

Mús í eplahúsi

Mús í eplahúsi

Reyndu að átta þig á hvar músin getur komist inn. Settu upp varnir.  Ágætt er að hafa samband við geitunga- og meindýrabanann. Getur líka bara hringt í 6997092. En ef þú vilt gera eitthvað sjálf/sjálfur þá get ég komið með nokkur heilræði, en fara skal að ölllu með gát því mýs eru smitberar og það er möguleiki að þær bíti þó það sé sjaldgæft.

1. Athugaðu dyr og glugga. Mýs komast undir hurðir og um rifur sem eru svo litlar að þú myndir ekki trúa því að þær færu þar í gegn.

kisa og mus

kisa og mus

2. Skoðaðu vel hvort það eru sprungur eða göt í veggjum, líka í kjallaranum. Mýs komast í gegn um gat sem er á stærð við hundrað krónu mynt.

3. Settu upp músagildrur fyrir utan hús og inni þar sem þú hefur trú á að mýs gætu verið. Einnig hægt að setja upp kassa með eitri í.

4. Settu upp búnað sem gefur frá sér hátíðnihljóð.

5. Fáðu þér góðan veiðikött

Það er alltaf betra að láta fagmann vinna verkið en allt í lagi að reyna fyrst sjálfur. Ef það gengur ekki þá er ráð að fá aðstoð.

Vinna skal verkið af varúð og hafa það í huga að mýs eru smitberar. Ef þær komast  inn þá geta þær byrjað að naga og skemma. Mundu það að veiða  mús er þolinmæðisvinna og getur það tekið stuttan tíma og líka langann tíma. Stundum þarf að hugsa og reyna að sjá við músinni, en um fram allt ekki gefast upp.

Set einnig upp varnir ef þú vilt geta fylgst með hvort mýs eða skordýr eru að heimsækja þig. Ekki hika við að hafa samband við geitunga- og meindýrabanann og spyrja, það kostar ekkert. GSM 6997092 eða senda sms.

Give it to me Sky…..Cat catches Mouse in House

Myndir og heimildir

Myndir af neti: Mús í eplahúsi
Myndir af neti: Kisa og mús
Myndband: Sótt á interneti

 

Ef ég sé eina silfurskottu, er þá önnur?

silfurskottan

silfurskottan

Svarið við spurningunni getur verið já eða nei. Það eru alveg jafnmiklar líkur á því að það séu fleiri skottur eins og það séu engar. Málið er að silfuskottan er bara kvenkyns. Það er í rauninni vandamálið því þá getur hún fjölgað sér að vild ef réttu aðstæðurnar skapast þ.e. hiti og raki.

Þegar hún hefur orpið eggjum þá er talið að fyrstu eggin klekist út eftir ca. 40 daga, það getur líka tekið lengri tíma alveg upp í nokkra mánuði, og er það vandamál, því ef það er eitrað þá er virkni eitursins 3 – 4 mánuðir fer eftir hvernig þrifum er háttað.

Ef eggin klekjast út eftir 4 – 6 mánuði þarf örugglega að eitra aftur en það er samt ekki öruggt að það sé nóg því möguleiki er á að einhver í fjölskyldunni sé að bera skottuna með sér heim. Ef eitrað er þá ættu skottur sem berast með heim að drepast þ.e.a.s. ef þær fara í eitrið. Það er því afar mikilvægt að fagmaður sjái um að eitra og geri það rétt.

Ef þig vantar aðstoð t.d. láta eitra fyrir silfurskottu, hambjöllu, könguló, eða öðrum óþolandi skordýrum, músum eða fjarlægja starrahreiður.

Set einnig upp varnir ef þú vilt geta fylgst með hvort mýs eða skordýr eru að heimsækja þig. Ekki hika við að hafa samband við geitunga- og meindýrabanann og spyrja, það kostar ekkert.

 

 Silverfish
Sjá myndband hér.

 

http://fiste.info/wp-admin/post-new.php

Myndir og heimildir

Myndir af neti: Silfurskotta
Myndband: You tube

Hvar er líklegt að silfurskotta haldi sig og hvað er til ráða?

silfurskottan

silfurskottan

Mjög algengur staður er þar sem raki er t.d. í baðherbergjum. Til að ráða niðurlögum siflurskottu er hægt að eitra. Silfurskottan getur farið hratt um og er oft u.þ.b. 10 mm að lengd. Þær eru nær sjónlausar, eru einungis kvenkyns og geta orðið allta að fimm ára gamlar.

Það er því betra að bregðast við fyrr en seinna, því við réttar aðstæður hátt rakastig og hita þá getur þeim fjölgað hratt, en þær eru reyndar ekki taldar vera mjög frjósamar. Fyrstu eggin klekjast út eftir ca. 6 vikur.

 

Sprungur í gólfi eða veggjum eru kjöraðstæður fyrir egg silfurskottunar og velur hún oft að verpa þar, t.d. vegna þess að eggin eru örugg þar og erfitt að hrófla við þeim. Silfurskotturnar þurfa ótrúlega lítið pláss til að komast í skjól minna einna helst á gelpoka. Myndbandið sem er neðst á síðunni sýnir mjög vel hvar silfuskottan getur líka verið þ.e. í matnum, skyldi hún verpa þar? (sjá hér)

Deltamost

Deltamost

Eitrið sem oft er notað heitir Deltamost og þarf leifi til þess að kaupa og nota það. Það er langvirkt eitur ef rétt er staðið að eitrun og þrifum fyrir og eftir eitrun. Það virkar í 3 – 4 mánuði og ætti því að vera hægt að ná góðum árangri, en rétt er að benda á að silfurskottan getur verið ansi erfið viðureignar, sérstaklega eru eggin vandamál, því eitrið drepur þau ekki.

 

 

logo geitungabu.is

logo geitungabu.is

Ef þig vantar aðstoð t.d. láta eitra fyrir silfurskottu, hambjöllu, könguló, eða öðrum óþolandi skordýrum, músum eða fjarlægja starrahreiður. Set einnig upp varnir ef þú vilt geta fylgst með hvort mýs eða skordýr eru að heimsækja þig. Ekki hika við að hafa samband við geitunga- og meindýrabanann og spyrja, það kostar ekkert.

 

Silverfish (Silfurskotta ótrúlegt myndband)

 

Myndir og heimildir

Upplýsingar um um Deltamost: Internetið
Myndir af neti: Silfurskotta
Mynd af eiturefnabrúsa: Internetið

 

Eru til eitraðir froskar?

Eitraður froskur

Sá eitraðasi á jörðinni

Svarið við því er já. á Vísindavefnum er að finna góða grein um “gullna eiturörvafroskinn” en hans heimkyni eru í mið- og suðurameríku. Sagan segir að indjánar í Kólumbíu noti eitur froskana á örvar sínar. Þeir blása örvunurm að fórnarlömunum (“blowgun darts”). Ekki þarf nema 2-10 míkrógrömm af eitrinu til að drepa fullorðinn mann, en eitt míkrógramm er einn milljónasti úr grammi. En hvernig fara indjánarnir að því að ná í eitrið. Lesa meira.

Á National Geographic er ágætis umfjöllun um eitraða froskinn. Lesa meira.

Ekki  má gleima því að það eru líka til eitraðar köngulær. Lesa meira.

Ef ykkur vantar aðstoð við að fjarlægja starahreiður, geitungabú, köngulær, silfurskottur eða önnur skordýr ekki hika við að hafa samband í síma 6997092 eða senda tölfupóst á 6997092@gmail.com, egill

Brazil POISON DARK FROG killer kills in 3 minutes subtitled Portugue