Geitungur fór inn um fúinn þakkant

Geitungur fór inn um fúinn þakkant
og inn í svefnherbergið

Þakka þér fyrir að koma á síðuna:-)

Vilt þú losna við geitungabú?
hafðu samband 6997092

Geitungurinn fór inn um fúinn þakkant. Inngönguleiðin var efst í þakinu. Erfitt við að eiga nema með réttum aðferðum

Geitungurinn fór inn um fúinn þakkant. Inngönguleiðin var efst í þakinu. Erfitt við að eiga nema með réttum aðferðum

Þessi saga er sönn
eins og hinar sögurnar.

Geitungarnir gerðu sér bú
fyrir ofan einangrunina á þakinu.

Þeir fóru inn um fúinn þakkant.

Það var því auðvelt fyrir
þá að gera geitungabú.

Líklega er um húsageitung að ræða. Continue reading

Hvernig lýsir bráðaofnæmi sér, hvað get ég gert?

Hvernig lýsir bráðaofnæmi sér hvað get ég gert?

starabit

starabit

Það lýsir sér m.a. í hósta og öndunarörðugleikum. Ég hef bent fólki á að ef starrafló eða geitungur bíti eða stingi þá geti það verið hættulegt vegna þess að líkaminn sýni ofnæmisviðrögð. En hvað er ofnæmi.

Ég fann mjög góðar upplýsingar frá Doktor.is og deili því hér með. Skoðið vel textann hér að neðan til að fræðast um bráðaofnæmi, gæti komið sér vel síðar

 

Bráðaofnæmi er lífshættuleg viðbrögð líkamans við
efnum sem hann kemst í snertingu við.

Efni sem geta valdið bráðaofnæmi
· Lyf s.s. sýklalyf og bólgueyðandi gigtarlyf.
· Matur s.s. skelfiskur, hnetur, jarðarber og egg.
· Skordýrabit eða stungur.

Hvað sérðu?
· Skyndileg vaxandi einkenni innan við 30 mínútum eftir snertingu við ofnæmisvaldinn
· Hnerri, hósti.
· Öndunarerfiðleikar, andnauð.
· Blámi í kringum varir og munn.
· Bólga í slímhúð, tungu, munni eða nefi.
· Útbrot.
· Hraður hjartsláttur.
· Ógleði og kviðverkir.
· Svimi.

Hvað gerirðu?
· Hringdu í Neyðarlínuna 112.
· Fjarlægðu ofnæmisvald ef hægt er.
· Aðstoðaðu við notkun adrenalínpenna ef viðkomandi á slíkan.
· Fylgstu með meðvitund og öndun.

Athugið þessar upplýsingar koma ekki í stað hefðbundinna skyndihjálparnámskeiða.

Birt með góðfúslegu leyfi Rauða kross Íslands

Bráðaofnæmi myndband frá síðdegisútvarpinu