Hvað get ég gert ef geitungur stingur mig?
Á vef landlæknisembætisins er að finna mjög góðar ráðleggingar. Að neðan eru nokkrir punktar sem gott er að styðjast við en frekari upplýsingar er að finna á vefnum
Almenn ráð
Til að forðast stungur er rétt að hafa eftirfarandi í huga:
- Að eyða búum sem eru við heimili – hafa samband, simi 6997092
- Sýna aðgát við garðvinnu, nota hanska.
- Matarbiti og drykkir bjóða geitungum heim. Gosdósir eru sérstaklega varhugaverðar.
- Geitunga innan dyra má sprauta á hárlakki eða að drepa í einu höggi.
- Hafa þétt net yfir vögnum barna sem sofa úti.
- Klæðast hvítum/ljósum fatnaði.
- Nota ekki ilmefni.
- Gangið ekki berfætt úti við, klæðist síðum buxum og langerma skyrtum.