Hvernig hegðar starraflóin sér?
Ef vantar aðstoð: Hafa samband eða hringja í 6997092
Ég hef fengið fyrirspurnir varðandi staraflóna. Fólk veltir því fyrir sér hvort það verði bitið ef það er komið starahreiður í húsið.
Það er alltaf möguleiki á að fólk verði bitið en ef rétt er staðið að málum má minnka líkur. Ég hef fundið ágæta umfjöllun um starfló á netinu.
Að neðan eru nokkur atriði sem geta útskýrt betur hvernig staraflóin hegðar sér.
Starafló er í raun fuglafló. Hún lifir á spörfuglum og hefur fundist á hænum.
Til eru fleiri tegundir eins og rottufló og mannafló, en þeim hefur fækkað mjög undanfarin ár en þó finnast dæmi um þær á hverju ári.
En hvernig er lífsferill staraflóar?
Fullorðnar flær skríða úr púpum sínum snemma á vorin til að leggjast á starann þegar hann kemur í hreiðrið
Starinn er bitinn og verpir flóin hreiðrið
Að nokkrum dögum liðnum klekjast lirfur klekjast úr eggjum, vaxa og dafna í hreiðrinu
Þær púpa sig þegar þær eru fullvaxnar. Í púpunum dvelja þær í hreiðrinu þar til starinn kemur um vorið.
Þær eiga það til að skríða úr púpum sínum ef hlýnar t.d. á haustin eða um vetur.
Það er því alltaf möguleiki á að fló bíti þó að starinn sé löngu farinn úr hreiðrinu
Það er ekkert víst að flóin fari á stjá þó að stari gerir sér hreiður í þakkanti eða á öðrum stað í húsinu.
Vandamálið verður til ef starrinn vitjar ekki hreiðursins vorið eftir. Þess vegna er mikilvægt að vinna verkið rétt til að minnka líkur á eða koma í veg fyrir að starafló bíti.
Þá á máltækið “það er ekki flóarfriður á heimilinu” vel við
Gefum okkur að lokað hafi verið fyrir inngönguleið starans og ekki eitrað og hreiður fjarlægt.
Flærnar skríða úr púpunni. Þær eru mjög svangar og leita að staranum eða réttara sagt blóði hans.
Ef hann kemur ekki í hreiðrið þá fara þær af stað, stökkva á allt sem á leið um hvort sem það eru menn eða gæludýr.
Þannig getur flóin borist inn á heimili fólks geta í þessu sambandi virkað sem flóaferjur enda eiga flær auðvelt með að halda sér í feld dýranna.
Ef starahreiður er í húsi nágrannans er möguleiki á að starafló geti borist til þín, en allt eins að það gerist ekki.
Mikilvægast af öllu er að fólk sé sammála um að vinna saman að því að leisa vandamálið. Góð leið til þess er að kalla til fagmann.