Vorum að kaupa hús en þar er mikið af starra hvað gerum við?
Hafið samband eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna við starahreiður.
Best er að eitra hreiðrið, fjarlægja
hreiðrið og loka inngönguleið.
Ef það er gert þá getur starinn ekki verpt aftur.
Það má gera ráð fyrir að starafló
(öðru nafni hænsnafló) sé í hreiðrinu.
Á þessum tíma árs er flóin að
vakna eða er vöknuð til lífsins.
Þegar starrinn kemur þá legst hún
á hann og sýgur blóð til að nærast.
Þegar ungarnir eru komnir eru
þeir einnig fórnarlömb hennar.
Ef starinn kemur ekki þá fer
flóin af stað og leitar fórnarlamba.
Það geta verið þú og ég.
Gæludýrin eru líka nokkurs konar burðardýr.
Flóin stekkur á feld þeirra og
fær far með þeim inn í húsið.
Kötturinn á það til að leggjast upp
í rúm hjá fólki og þar heldur flóin sig.
Þegar íbúar leggjast til
svefns þá ræðst hún á þá.
Algengir staðir þar sem
flóin bítur er undir belti,
undir sokkum við úlnliði
og handleggi.
MItt ráð: Ekki gera ekki neitt.
Meira um stara og starahreiður
Hafið samband eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna við starahreiður.