Er hægt að eitra fyrir köngulóm á svölum?
Já það er hægt. Hafið samband eða hringið í 6997092 ef ykkur vantar aðstoð.
Mér datt í hug að setja mig í spor köngulóarinnar Carlottu Feng og deila hugsunum hennar með ykkur.
Rétt er að taka það fram að hún var orðin húsvön að hennar áliti.
Köngulær geta jafnvel verið fallegar og óvenjulegar alveg eins og við.
Þær geta verið sérlundaðar og tekið upp á hinum ótrúlegustu hlutum alveg eins og við. Köngulær eru góðar í að veiða flugur og jafnvel geitunga.
Þær kunna að bjarga sér. Þær gera því heilmikið gagn. Það þarf ekki að gefa þeim að borða, það þarf ekki að sinna þeim neitt.
Þær eru yfirleitt bara að vinna fyrir þig þ.e. að veiða flugur. En já en það sem er óþolandi það eru vefirnir og þegar þeim dettur það í hug að veita þér félagsskap.
Þær láta sig síga í áttina að stólnum hægt og rólega en samt ótrúlega hratt.
Þær segja hæ, hér er gott að vera best að smakka á brauðinu hjá þér og skola því niður með ávaxtasafanum, en þar sem köngulóin er í hátíðarskapi þá fer hún ferkar í rauðviníð.
Já þær gera mistök, alveg eins og þegar geitungnum dettur það í huga að stinga hundinn.
Ef geitungur gerir það þá er hann búinn að vera, kveður sjálfur upp sinn dauðadóm. Þessi saga er samin meira til að hafa gaman af en ég hugsa að það sé sannleikskorn í henni.
Það sem ég held samt að flestir séu sammála um er að köngulóar vefirnir eru óþolandi.
Sumum finnst líklega viðbjóðslegt að ganga á þá, því þeir sjást yfirleitt aldrei. Þegar það gerist klístrast þeir í andlitið og við verðum pirruð.
En ekki hugsa um það ef þið viljið vera laus við köngulær
látið vita. Hringið bara í 6997092 ég er við símann núna.
Mitt ráð: Ekki gera alls ekki neitt.