Lítið geitungabú
Ekki hika við að hafa samband eða hringið í 6997092 ef ykkur vantar aðstoð.
Mjög lítið geitungabú rakst ég á í gær,
þ.e.a.s. ég tók eftir því.
Það er á stærð við lítinn kirsuberjatómat.
Geitungabúið var við bakdyr á einbýlishúsi.
Geitungabúið gæti verið frá því í fyrra
Þó að búið sé lítið er möguleiki á að
þar sé komin ein eða tvær flugur.
Það ber því að fara varlega.
Öruggast er að fá fagmann til að fjarlægja búið, eins og gert var í þetta sinn.
Í þessu tilfelli var engin fluga og engin umferð.
Það var meira líf við húsið.
Ranabjöllur eða skordýr sem líktust þeim voru við þröskuldinn. Á meðan ég staldraði við var lítil búttuð könguló í göngutúr við lappirnar. Ég tók myndband af henni.
Mitt ráð: Ekki gera ekki neitt
Ekki hika við að hafa samband eða hringið í 6997092 ef ykkur vantar aðstoð.
Myndband: Búttuð könguló