Hvað eru geitungabúin stór núna?
Ef ykkur vantar aðstoð. Hafið samband eða hringið í 6997092
Þau eru allt frá því að vera á stærð við golfkúlu og upp í ca. 16 cm í þvermál.
Ég giska á að það taki geitungabúa u.þ.b. 3 vikur að stækka úr 5 cm í 15 cm.
Flugunum fjölgar einnig og geta verið 50 flugur í búi sem er 10 cm í þvermál.
Lirfunum fjöglar ört því drotningin notar þernurnar til að afla fæðu fyrir sig og lirfunar.
Sumar lirfurnar eru orðnar á stærð við lítinn geitung.
Það styttist því í að lirfur breytist í flugur og þá stækkar búið enn hraðar.
Ef þið sjáið geitungabú ættuð þið að láta eyða því sem fyrst ef ykkur er illa við að hafa það nálægt ykkur.
Búin geta verið á ólíklegustu stöðum t.d. í dekkjarólu, kerrunni, við útidyrahurðina, undir glugganum inni í glugganum, í loftræstiopi, undir borðinu á sólpallinum.
Svona mætti lengi telja en það er eiginlega enginn einn staður frekar en annar.
Ef geitungur stingur ykkur þarf að fylgjast vel með ofnæmisviðbrögðum.
Ef líkaminn sýnir þau er ráð að bera á vægt sterakrem “Mildi Zone” og taka inn ofnæmistölfur “Loretine”, fæst held ég í Lifju. Ef ykkur vantar aðstoð. Hafið samband eða hringið í 6997092
Mitt ráð: Ekki gera ekki neitt
Ég tók myndband af geitungabúinu við bílskúrshurðina.
Ég þorði ekki að vera mjög nálægt með myndavélina því það var þó nokkur umferð af geitungum.
Ef þið setjið gleraugun upp þá ættuð þið að sjá nokkra geitunga
Nokkrir geitungar og lirfa stuttu eftir eitrun.